Erlent

Tveir menn handteknir eftir hrottalega sveðjuárás úti á götu

Frá vettvangi í dag.
Frá vettvangi í dag.

Tveir karlmenn hafa verið handteknir eftir sveðjuárás í  suðaustur hluta Lundúna í dag en mennirnir myrtu mann úti á götu. Samkvæmt BBC er talið að fórnarlambið sé breskur hermaður. Haft er eftir David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, að vísbendingar bendi til þess að um hryðjuverkaárás sé að ræða.

Átök urðu á milli lögreglu og sveðjumannanna sem létu öllum illum látum eftir að hafa myrt manninn. Meðal annars stillti einn þeirra sér upp fyrir framan eftirlitsmyndavél og hrópað að þeir svöruðu árás „þeirra“ með sama hætti og ráðist væri á þá. Einnig að þeim þætti leitt að konur hefðu orðið vitni að árásinni, en þetta væri samt sem áður nokkuð sem konur í þeirra landi þyrftu að horfa ítrekað upp á.

Fjölmörg vitni virðast hafa orðið að árásinni sem lýsa henni sem hrottafenginni aftöku á opinberum vettvangi.

Lögreglan skaut mennina tvo og voru þeir fluttir á spítala þar sem nú er gert að sárum þeirra.

Í umfjöllun The Sun má meðal annars sjá hrottalegt myndband þar sem annar sveðjumannanna gengur upp að nærstöddum vegfaranda og reynir að útskýra verknaðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×