Erlent

Gamalmenni á topp Everest

Jakob Bjarnar skrifar
Yuichiro Miura kominn á tindinn.
Yuichiro Miura kominn á tindinn.

Áttræður japanskur fjallgöngumaður varð á miðvikudag elstur til að komast á tind Mount Everest.

Ekki lítur þó út fyrir að það met standi lengi því nepalskur garpur, 81 ára gamall, leggur á tindinn í næstu viku. Yuichiro Miura, sem sigraði þennan 8,850 metra tind, fór á fjallið þegar hann var sjötugur og aftur 75 ára gamall. Hann að vonum kátur og í símtali af toppi fjallsins sagði hann þetta heimsins bestu tilfinningu, þótt uppgefinn væri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×