Kosningar í Búlgaríu - hætta á stjórnarkreppu 12. maí 2013 12:15 Kosningar í Búlgaríu.
Gengið er til kosninga í Búlgaríu í dag. Hægrimenn og sósíalistar eru hnífjafnir í skoðanakönnunum og óttast stjórnmálaskýrendur að það gæti orðið til þess að hvorugur flokkur nái að mynda meirihluta. Eftir kröftug mótmæli í febrúar gegn fátækt og spillingu sagði ríkisstjórn landsins undur forystu hægri manna í GERB flokknum af sér. Búlgaría er fátækasta landið í Evrópusambandinu. Atvinnuleysi hefur ekki verið meira þar í átta ár og einn af hverjum fjórum er undir fátæktarmörkum. Þetta hefur skiljanlega sett mark sitt á stjórnamálumræðuna í aðdraganda kosninganna, ekki síður en áhyggjur kjósenda af mikilli spillingu í stjórnsýslunni. Tveir flokkar eru hnífjafnir í könnunum. Sósíalistar og hægri menn í GERB flokknum. Sóslíalistar lofa aukinni eyðslu hins opinbera í von um að örva hagvöxt og minnka atvinnuleysi en hægri menn lofa hins vegar að lækka skuldir hins opinbera og auknum stöðugleika. Fari úrslitin á þann veg sem kannanir benda til gæti stjórnarkreppa fylgt í kjölfarið vegna erfiðleika við að mynda starfhæfan meirihluta á þinginu. Stjórnmálaskýrendur segja að fari svo þyrfti jafnvel að kjósa á nýjan leik. Það flækir málin enn frekar að í gær lagði lögreglan hald á 350 þúsund ólöglega kjörseðla og er óttast að reynt verði að svindla í kosningunum í landinu. Þá kom fram í könnun sem var framkvæmd í landinu að tólf prósent kjósenda væru tilbúnir að selja atkvæði sitt hæstbjóðanda.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Fleiri fréttir Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Sjá meira