Erlent

Yfir 80.000 liggja í valnum í Sýrlandi

Jóhannes Stefánsson skrifar
Uppreisnarhermenn skjóta á hersveitir stjórnvalda
Uppreisnarhermenn skjóta á hersveitir stjórnvalda Mynd/ AFP
Yfir 80.000 manns hafa nú látist í átökunum í Sýrlandi frá því að þau hófust fyrir meira en tveim árum síðan.

Helmingur hinna látnu eru óbreyttir borgarar samkvæmt talningum Syrian Observatory for Human Rights.

Átökin brutust út í mars 2011 þegar stjórnvöld í Sýrlandi brugðust við mótmælum í landinu með hervaldi og hafa staðið óslitin síðan með skelfilegum afleiðingum.

Sjá frétt The Australian um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×