Myrtur á hrottafenginn hátt af vinum sínum er hann kom út úr skápnum Jóhannes Stefánsson skrifar 13. maí 2013 15:00 Réttindi samkynhneigðra þykja skammt á veg komin í Rússlandi. Mynd tengist efni fréttarinnar ekki beint. Mynd/ AFP
23 ára rússneskur maður var myrtur á hrottafenginn hátt af vinum sínum eftir að hafa sagt þeim frá því að hann væri samkynhneigður. Talið er að atburðarásin hafi verið sú að maðurinn sat ásamt tveimur vinum sínum við drykkju og ákvað að tjá þeim að hann væri samkynhneigður. Að svo búnu réðust mennirnir að sögn á hann og afklæddu hann. Þá létu þeir hann ganga um nakinn og niðurlægðu manninn. Mennirnir tveir veittu honum ýmsa áverka og misþyrmdu honum kynferðislega með bjórflöskum. Þá skáru þeir með eggvopni í kynfæri fórnarlambsins en fórnarlambið var meðvitundarlaust eftir atganginn. Mennirnir ákváðu þá að myrða fórnarlambið svo að það yrði ekki til frásagnar um árásina og gerðu það með því að kremja á honum höfuðið með 20 kílóa steini. Atgangurinn var slíkur að lögregluyfirvöldum reyndist erfitt að bera kennsl á lík mannsins. Tveir menn eru í haldi lögreglu vegna málsins en þeir eru sagðir tengjast gengi sem fyrirlítur samkynhneigð. Yfirvöld í Rússlandi hafa lýst því yfir að um sé að ræða hatursglæp gagnvart samkynhneigðum, sem telst óvenjulegt í ljósi þess að rússnesk yfirvöld hafa verið afturhaldssöm þegar kemur að málefnum samkynhneigðra. Yfirmaður rannsóknarinnar sagði í kjölfar manndrápsins: „Hvatinn fyrir morðinu var óhefðbundin kynhneigð fórnarlambsins." Sjá frétt um málið á RT.com
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira