Erlent

Skattstjóri rekinn

Jakob Bjarnar skrifar
Steve Miller fékk að fjúka.
Steve Miller fékk að fjúka.

Steve Miller, alríkisskattstjóri Bandaríkjanna, hefur verið rekinn eftir að í ljós upp komu hneykslismál í tengslum við misnotkun embættisins sem beindist gegn Teboðshreyfingunni.

Jack Lew fjármálaráðherra fór fram á afsögn Millers. Barack Obama forseti hefur lýst yfir vandlætingu á framferði embættismanna skattayfirvalda, og segir þetta misnotkun á völdum en ýmis hægrisinnuð samtök sem tengd eru Teboðshreyfingunni hafa mátt sæta sérstökum rannsóknum af engu tilefni. Þá hefur umsóknum þeirra um afgreiðslu verið stungið undir stól. Repúblikanar eru ævareiðir vegna þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×