Erlent

Loftsteinn sem skall á tunglinu olli risavaxinni sprengingu

Loftsteinn sem skall á tunglinu nýlega olli svo risavaxinni sprengingu að hægt var að sjá blossann af henni á jörðu niðri án sjónauka. Þetta kemur fram á vefsíðu bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA.

Í frétt um málið á CNN segir að NASA hafi undanfarin átta ár fylgst sérstaklega með tunglinu með það fyrir augum að ná upplýsingum um árekstra loftsteina við þennan fylgihnött jarðarinnar.

Bill Cooke einn af vísindamönnum NASA segir að fyrrgreind sprenging hafi verið um tífalt öflugri en nokkuð sem þeir hafa séð áður.

Talið er að hraðinn á loftsteininum þegar hann skall á tunglinu hafi verið um 90.000 km á klukkustund og að kraftur sprengingarinnar hafi samsvarað um fimm tonnum af TNT.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×