Erlent

Baulað á Thorning-Schmidt

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Helle Thorning-Schmidt vakti enga kátínu í Árósum í dag.
Helle Thorning-Schmidt vakti enga kátínu í Árósum í dag. Mynd/ AFP.
Baulað var á Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, þegar hún hugðist halda ræðu í Árósum í dag, í tilefni af 1. maí. Að minnsta kosti einn maður var handtekinn fyrir að sprauta vatni á forsætisráðherra, að því er fram kemur á vef Jyllands-Posten. Svo mikil varð truflunin að forsætisráðherran gat varla komið upp orði. Hún hóf þó upp raust sína á endanum og hélt ræðuna. Hún endaði hana á því að óska þeim sem væru komnir til að hlusta og eiga rökræður gleðilegs verkalýðsdags.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×