Erlent

Hátíðahöld vegna fjórða júlí upphaflega skotmarkið

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Þrír týndu lífi í sprengingunni í Boston-maraþoninu og að minnsta kosti 260 særðust.
Þrír týndu lífi í sprengingunni í Boston-maraþoninu og að minnsta kosti 260 særðust.
Bræðurnir Dzhokhar og Tamerlan Tsarnaev, sem taldir eru bera ábyrgð á sprengjutilræði í Boston-maraþoninu í síðasta mánuði, ætluðu upphaflega að láta til skarar skríða þann 4. júlí á mannmörgum fögnuði í borginni vegna þjóðhátíðardags Bandaríkjanna.

Þetta kom fram í yfirheyrslum yfir yngri bróðurnum, Dzhokhar, en sá eldri féll í skotbardaga við lögreglu á skólalóð MIT-háskólans í Michigan fjórum dögum eftir sprenginguna.

Dzhokhar sagði við yfirheyrslur að bræðurnir hefðu ákveðið að flýta sprengjuárásinni og ráðast þess í stað á maraþonið þegar sprengjurnar voru tilbúnar löngu á undan áætlun. Þrír týndu lífi í sprengingunni og að minnsta kosti 260 særðust.

Um hálf milljón manns fagna þjóðhátíðardeginum árlega í Boston og er hátíðahöldunum sjónvarpað um land allt á CBS-sjónvarpsstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×