Erlent

Kanna landvistarleyfi skiptinema

Útlendingaeftirlit Bandaríkjanna mun á næstu dögum kanna landvistarleyfi allra erlendra skiptinema í landinu.

Er þetta gert að beiðni Heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna sem freistar þess nú að koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir á borð við þær sem áttu sér stað við endamark Boston-maraþonsins á dögunum.

Tilræðismennirnir nutu aðstoðar skiptinema sem földu gögn þegar leit að þeim stóð sem hæst.

Neminn var með ógilt landvistarleyfi og er sakaður um að hafa hindrað framgang réttvísinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×