Erlent

Lögum um guðlast mótmælt

Jakob Bjarnar skrifar
Lögregla og meðlimir Hefazat-e-Islam takast á.
Lögregla og meðlimir Hefazat-e-Islam takast á.
Fjórir eru látnir í miklum óeirðum í höfuðborg Bangladesh.

Í gær mátti heyra skothríð og sprengingar  á götum úti en Islamskir mótmælendur krefjast þess að lög sem hafa verið sett gegn guðlasti verði felld úr gildi. Þúsundir meðlima samtakanna Hefazat-e-Islam stöðvuðu alla umferð til höfuðborgarinnar,  til að undirstrika kröfur sínar, sem eru margvíslegar. Átök brutust út þegar Hefazat-menn reyndu að brjóta niður herkví lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×