Erlent

Ariel Castro ákærður fyrir mannrán og nauðganir

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Konurnar þrjár voru fangar á heimili Ariels í áratug.
Konurnar þrjár voru fangar á heimili Ariels í áratug.
Ariel Castro, eigandi hússins sem þremur konum var haldið föngnum í áratug í borginni Cleveland, hefur verið ákærður fyrir mannrán og nauðganir.

Hann var handtekinn ásamt bræðrum sínum, Pedro og Onil Castro, en þeir hafa ekki verið ákærðir og segir lögreglustjórinn í Cleveland að ekkert bendi til þess að þeir tengist málinu.

Konurnar voru bundnar með reipi á heimili Ariels, en það var nágranni sem heyrði til einnar þeirra, Amöndu Berry, og sparkaði upp útihurð hússins og gerði lögreglu viðvart.

BBC hefur greint frá því að tveimur kvennanna hafi verið nauðgað ítrekað í prísundinni, og er ein þeirra sögð hafa verið neydd til að taka á móti barni Amöndu Berry, og hótað lífláti ef barnið lifði fæðinguna ekki af. Castro er talinn vera faðir barnsins.

Þá kemur fram í ákærunni að ein kvennanna hafi fimm sinnum orðið þunguð eftir nauðganir Castros, sem hafi kýlt hana í magann í hvert sinn þar til hún missti fóstrið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×