Vermont fylki slakar á klónni gagnvart kannabisefnum Jóhannes Stefánsson skrifar 18. apríl 2013 11:15 Frumvarpið verður mögulega samþykkt í dag Mynd/ Samsett mynd
Fulltrúadeild Vermont fylkis samþykkti í vikunni frumvarp sem miðar að því að lækka verulega refsingar við vörslu kannabisefna í fylkinu. Ef frumvarpið verður samþykkt í öldungadeildinni verður ekki lengur glæpsamlegt að vera með allt að 28 grömm af efninu á sér.Í staðin geta þeir sem verða uppvísir að vörslu þess átt von á því allt að 300 dollara sekt, svipaðs eðlis og stöðumælasekt. 92 fulltrúar studdu frumvarpið en 49 voru á móti. Þá felur frumvarpið í sér þá nýbreytni að brot á lögunum skilur ekki eftir sig nein varanleg spor á sakaskrá viðkomandi. Eins og sakir standa geta þeir sem verða uppvísir að vörslu efnisins átt erfitt með að fá vinnu og misst rétt til ýmissa bóta, en ef frumvarpið verður að lögum heyrir það sögunni til. Frumvarpið á eftir að fara fyrir öldungadeildina í Vermont, en líkur standa til að hún muni samþykkja frumvarpið. Stuðningsmenn frumvarpsins skiptust í tvo hópa; annars vegar þá sem vildu ekki að varsla kannabisefna myndi koma fram á sakaskrá viðkomandi og þannig takmarka verulega framtíðarmöguleika ungs fólks og hinsvegar stuðningsmenn lögleiðingar, sem sjá frumvarpið sem skref í átt að lögleiðingu efnisins. „Ef þetta er skref í átt að því að lögleiða efnið svo að við getum skattlagt það og stýrt því betur, þá er það skref ég ég er tilbúinn að taka," sagði demókratinn Tony Klein. Klein bætti því svo við að hann hefði ekki neytt áfengis eða annarra vímuefna í meira en 28 ár. Meðlimir nefndarinnar sem sömdu lagafrumvarpið tóku þó ekki í sama streng og neituðu því að markmiðið með frumvarpinu væri að stíga skref í átt lögleiðingar. „Það var ólöglegt í gær, það er ólöglegt í dag og ef frumvarpið verður að lögum í báðum deildum þingsins verður það áfram ólögleg," sagði demókratinn Linda Waite-Simpson sem átti sæti í nefndinni sem kynnti frumvarpið fyrir kollegum sínum. Vermont verður þá sextánda fylki Bandaríkjanna til að afglæpavæða vörslu kannabisefna. Þar af eru tvö fylki, Colorado og Washington, sem hafa gengið skrefinu lengra og lögleitt vörslu neysluskammta með miklum stuðningi kjósenda. Richard Sears, formaður dómsmálanefndar öldungadeildarinnar sagði á föstudaginn síðastliðinn að hann byggist við því að öldungadeildin myndi samþykkja frumvarpið með miklum mun. „Ég býst við að tvöfalt fleiri segi já en nei." Hann vildi þó ekki gefa upp afstöðu sína til frumvarpsins. „Það eru smáatriðin sem skipta öllu máli," sagði Sears. Það sem truflar hann helst er það að einstaklingar undir 21 árs aldri gætu fengið dóm fyrir vörslu áfengis en ekki kannabisefna undir 28 grömmum. „Það finnst mér óskiljanlegt," bætti Sears við. Sumir repúblikananna studdu frumvarpið en meginþorri þeirra sem veittu því andstöðu eru repúblikanar. Ein þeirra sem styðja ekki frumvarpið er Cynthia Browning, sem sagði efnið „kröftugt geðlyf." Hún tók undir með öðrum sem sögðu að samþykkt frumvarpsins myndi senda þau skilaboð til ungs fólks að yfirvöldum væri ekki alvara með að banna efnið. Sjá nánar á Valley News og Burlington Free Press
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira