Varaborgarfulltrúi staddur í Boston Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. apríl 2013 16:02 Diljá Ámundadóttir segir ástandið mjög spennuþrungið í Boston. Mynd/ AFP. „
Við erum staddar hérna í Beacon Hill, sem er hinum megin við ána frá því sem ástandið er sem mest," segir Diljá Ámundadóttir, varaborgarfulltrúi í samtali við Vísi. Diljá er ásamt vinkonu sinni í Boston, en þær voru á Fleetwood Mac tónleikum sem fóru fram í gær. Þar er núna útgöngubann vegna þess að lögreglan leitar annars tilræðismannsins sem grunaður er um að hafa staðið að sprengingunum í Boston-maraþoninu á mánudaginn. Almenningssamgöngur hafa verið stöðvaðar í Boston, götum hefur verið lokað og verslunareigendur beðnir um að loka verslunum sínum. Maðurinn sem leitað er að er talinn vera með sprengiefni og önnur vopn á sér. Talið er að maðurinn sé nítján ára gamall og upprunalega frá Tsjetsjeníu. Bróðir hans var skotinn til bana fyrr í morgun en þeir hafa búið í Bandaríkjunum í um ár. Diljá segir að þyrlur fljúgi stanslaust yfir svæðið þar sem hún er og reglulega heyrist sírenuvæl frá lögreglubílum. Þær hafi ekkert farið út í dag vegna útgöngubannsins, en þær skynja mjög þrungið andrúmsloft. Síðastliðna tvo daga hafi þær aftur á móti skynjað ákveðna yfirvegum og nánd á meðal fólks í borginni. Til dæmis hafi mátt skynja samhuginn á meðal fólks mjög sterkt í gær þegar tónlistarfólkið talaði um árásirnar.
Mest lesið Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Innlent Skotmennirnir feðgar Erlent Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Innlent Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Innlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Innlent Fleiri fréttir Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Sjá meira