Stoltir af bandalagi við Ísraela Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 20. mars 2013 15:28
Barack Obama Bandaríkjaforseti er staddur í Ísrael, en í dag er fyrsti dagur opinberrar heimsóknar hans til landsins. Þetta er í fyrsta sinn sem forsetinn heimsækir landið í forsetatíð sinni, og á flugvellinum í Tel Aviv biðu hans Shimon Peres forseti Ísrael, og Benjamín Netanyahu forsætisráðherra. Þjóðsöngvar beggja þjóða voru leiknir og því næst tóku þjóðhöfðingjarnir til máls. Sagði Obama Ísraela „helstu bandamenn og bestu vini Bandaríkjanna". Bandalag þjóðanna myndi vara að eilífu. Sagði hann einnig að „friður yrði að komast á í hinu heilaga landi". Shimon Peres sagði að án siðferðislegrar handleiðslu Bandaríkjamanna væri heimurinn verri, og að án vináttu við Bandaríkin ætti Ísrael undir högg að sækja. Obama mun funda með Netanyahu síðar í dag, og á morgun heimsækir hann Vesturbakkann þar sem hann mun hitta Mahmoud Abbas, forseta Palestínu. Ísraelskur almenningur er ekki sérlega ánægður með Obama, enda hefur hann ekki ræktað vinabönd þjóðanna jafn vel og margir forvera sinna. Hafa samskipti Obama og Netanyahu verið stirð í gegn um tíðina og fréttaritari Channel 10 í Ísrael greindi frá því í útsendingu stöðvarinnar frá flugvellinum að þeir „þoli ekki hvor annan".
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglinn í Þýskalandi Erlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Fleiri fréttir Trump segist vera að íhuga að draga saman seglinn í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Sjá meira