Erlent

Gazza hélt hann væri að fara deyja

Breska knattspyrnugoðsögnin Paul Gascoigne segist í samtali við Sky fréttastofuna hafa verið viss um að hann væri að fara deyja þegar læknar bundu hann niður eftir að hann var lagður inn á spítala nýlega.

Gascoigne hefur barist við bakkus í áratugi og var í lífshættu í febrúar síðastliðnum vegna drykkju. Vinir hans þvinguðu hann í meðferð í Bandaríkjunum. Í viðtalinu segir hann að læknarnir hafi ekki talið að hann myndi hafa það af enda hefðu þeir aldrei séð annað eins.

Hann er nú á batavegi og er kominn aftur til Bretlands þar sem hann segist vera fullviss um að geta tekið á sínum málum í faðmi fjölskyldu sinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×