Erlent

Google minnist Douglas Adams

Andi breska rithöfundarins Douglas Adams svífur yfir leitarsíðu tæknirisans Google í dag. Adams hefði orðið 61 ára gamall í dag en hann lést 11. maí árið 2001.

Hefð er fyrir því að minnast áhrifaríkra einstaklinga í svokölluðu Google doodle, eða Google-kroti, en það má sjá á heimasíðu fyrirtækisins. Að þessu sinni má sjá hluti, persónur og fyrirbæri sem Adams fjallaði um í skáldsögum sínum. Þar á meðal er tebolli en þar er vísað í The Long Dark Teatime of the Soul sem var hluti af Dirk Gently bókaröðinni.

Það er síðan vart hægt að minnast Douglas Adams án þess að fjalla um Leiðarvísi puttaferðalangsins um Vetrarbrautina (e. The Hitchhiker's Guide to the Galaxy) enda má sjá handklæðið góða í krotinu sem og leiðarvísinn sjálfan. Þegar smellt er á lyftuna birtist vænisjúka vélmennið Marvin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×