Erlent

Svíaprinsessa lést í gær

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lilian Svíaprinsessa er látin.
Lilian Svíaprinsessa er látin. Mynd/ AFP.
Lilian, prinsessa Svíþjóðar, sem var frægust fyrir ástarsamband sitt við Bertil prins lést í gær, 97 ára að aldri. Lilian, sem er fædd í Wales kynntist Bertil prins í Seinni heimstyrjöldinni árið 1943. Samband þeirra var hins vegar litið hornauga vegna þess að Bertil var konungborinn en Lilian var fráskilin alþýðukona. Þau gátu því ekki gift sig fyrr en árið 1976. Lilian þjáðist af Alzheimer síðustu ár ævi sinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×