"Ég veit ekki hvað í fjandanum ég var að gera" 12. mars 2013 13:19 Gazza og Moat
Knattspyrnugoðsögnin Paul Gascoigne er nú kominn til Bretlands úr fimm vikna áfengismeðferð í Bandaríkjunum. Gazza hefur verið meira og minna ölvaður síðasta áratug. Í viðtali við breska götublaðið The Sun segir hann frá afar furðulegu atviki sem átti sér stað í júlí árið 2010. Þá hafði lögreglan umkringt morðingjann Raoul Moat eftir vikulanga leit. Moat skaut á fyrrverandi eiginkonu sína og myrti elskhuga hennar auk þess að hafa skotið lögregluþjón. Fylgst var með gangi mála í beinni útsendingu þar sem Moat hafði verið króaður af í stóru afrennslisröri í bænum Rothbury. Eftir nokkra klukkustunda samningaviðræður við morðingjann mætti Gascoigne óvænt á svæðið. Í samtali við útvarpsstöð sem fylgdist með sagði hann: „Ég er kominn alla leið frá Newcastle til að hitta hann og spjalla aðeins við hann." Lögreglan trúði því ekki að Gazza myndi þekkja Moat en hann var alveg á því að hann gæti hjálpað lögreglunni til þess að fá hann til að gefa sig fram. Nú þremur árum síðar hefur knattspyrnugoðsögnin sagt sína hlið á málinu - sem vakti gríðarlega athygli á sínum tíma. „Ég veit ekki hvað í fjandanum ég var að gera. Veiðistöng og kjúkling? Hvað var ég að hugsa? Ég hef reyndar farið að veiða þegar mér hefur liðið illa, ætli ég hafi ekki hugsað að það gæti virkað fyrir hann," segir Gazza í samtali við The Sun. „Ég var búinn að vera á fylliríi og sá fréttina um Moat í sjónvarpinu. Án þess að hugsa ákvað ég að ég þyrfti að fara til hans og hjálpa honum. Ég tók með mér veiðistöng, kjúkling og kippu af bjór - og settist inn í leigubíl. Ég hugsaði „Moaty mun aldrei skjóta mig, við erum góðir vinir"," segir Gazza en staðreyndin hafi hinsvegar verið sú að hann þekkti hann ekki neitt - hafði aldrei heyrt um hann né séð hann áður. „Ég sagði leigubílstjóranum hvert hann ætti að fara og þegar hann sá bæjarskiltið í Rothbury horfði hann á mig og sagði: „Ég vona að við séum ekki að fara á þann stað sem ég held?" Þegar við komum á leiðarenda, hljóp ég út úr bílnum og sagði honum að ég myndi koma eftir eina mínútu. En um leið og ég fór út brunaði hann í burtu." Gascoigne labbaði upp að lögreglumönnum sem voru á vettvangi og sagði: „Hann er reiðubúinn til að gefa sig fram núna. Ég vil bara ráðleggja honum og segja við hann: „Kommon Moaty, þetta er Gazza". Þessi uppákoma knattspyrnugoðsagnarinnar vakti mikla athygli. Til dæmis sagði umboðsmaður hans í samtali við breska fjölmiðla á sínum tíma: „Er hann hvað? Ég er að snæða kvöldverð hér á Mæjorka. Ég á ekki til orð." Gazza segist hafa snúið núna við blaðinu og vonast til að vera edrú áfram. Ef hann hefði haldið áfram að drekka væri hann ekki á lífi.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Innlent Fleiri fréttir Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjá meira