Risasjónaukinn formlega vígður 14. mars 2013 10:52 Alma-röðin séð úr lofti. Mynd/ESO.org
Risasjónaukinn ALMA var formlega vígður á athöfn á afskekktum stað í Andesfjöllum í Chile í gær. Sjónaukinn er samstarfsverkefni Evrópu, Norður-Ameríku og Austur-Asíu en starfstöð hans er í 5.000 metra hæð yfir sjávarmáli. „Næturhimininn er ein af fjöllmörgum náttúruauðlindum okkar í Chile. Ég tel að vísindin hafi lagt fram mikilvægt framlag til þróunar í Chile á undanförnum árum. Ég er stoltur af alþjóðlegu stjarnvísindasamstarfi okkar en ALMA er nýjasti og stærsti afrakstur þess," sagði Sebastián Piñera, forseti Chile, sem var heiðursgestur á vígsluathöfninni. Sjónaukinn er nú þegar farinn að veita jarðarbúum fordæmislausa sýn á alheiminn. Sjá hér. ALMA sér alheiminn í ljósi sem mannsaugað greinir ekki og mun sýna okkur í smáatriðum fyrirbæri sem tengjast myndun stjarna, barnungum vetrarbrautum í árdaga alheims og reikistjörnur í mótun umhverfis fjarlægar stjörnur. Sjónaukinn mun einnig finna og mæla dreifingu sameinda sem finna má á milli stjarna í geimnum, sumar hverjar nauðsynlegar lífi.Myndir ALMA af þyngdarlinsum fjarlægra hrinuvetrarbrautaMynd/ESOUpp úr 1980 var stjörnustöðin upphaflega hugsuð sem þrjú mismunandi verkefni í Evrópu, Bandaríkjunum og Japan en ákveðið var að sameina þau í einn sjónauka á tíunda áratugnum. Smíði sjónaukans hófst svo árið 2003. Heildarkostnaður við ALMA nemur um það bil 1,4 milljörðum bandaríkjadala eða um 177 milljörðum íslenskra króna. Þar af er hluti Geimvísindastofnunar Evrópu, ESO, 37,5%. ALMA samanstendur af 54 tólf metra og 12 smærri sjö metra loftnetum sem starfa saman sem einn sjónauki. Hvert loftnet safnar geislun utan úr geimnum og beinir í móttakara. Merkin frá loftnetunum eru síðan sameinuð og unnin með ALMA ofurtölvunni. Hægt er að raða loftnetunum 66 upp á mismunandi hátt og getur fjarlægðin milli loftneta verið á bilinu 150 metrar til 16 kílómetrar. Saga sjónaukans er rakin í 16 mínútna löngu myndbandi sem sjá má hér fyrir neðan. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu ESO þaðan sem framangreindar upplýsingar eru fengnar.
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fleiri fréttir Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Sjá meira