Johnson sakaði Nixon um landráð árið 1968 19. mars 2013 07:00
Hljóðritanir af símtölum Lyndon B. Johnson fyrrum forseta Bandaríkjanna sem nýlega voru gerðar opinberar sýna að Richard Nixon næsti forseti kom í veg fyrir að hægt væri að semja um frið í Víetnam þegar árið 1968. Símtöl þessi voru tekin upp á búgarði Johnson í Texas meðan hann var enn forseti Bandaríkjanna en eftir að hann hafði sagt opinberlega að hann myndi ekki bjóða sig fram að nýju. Þetta ár eða 1968 voru Bandaríkjamenn og stjórnvöld í Suður og Norður Víetnam mjög nálægt því að binda enda á stríðið í Víetnam í friðarviðræðum í París. Nixon ákvað að eyðileggja þetta ferli til að reyna að tryggja sér forsetaembættið í komandi kosningum. Nixon kom sér upp sérstökum tengilið við sendiráð Suður Víetnam í Washington og sagði sendiherranum í gegnum þennan tengilið að þeir ættu að eyða þessum friðarumleitunum þar sem þeir fengju betri samning þegar Nixon væri orðinn forseti. Í ítarlegri umfjöllun um málið á vefsíðu BBC segir að í símtölum Lyndon B. Johnson við leiðtoga Demókrataflokksins kemur fram að FBI hleraði síma tengiliðs Nixon og því vissi Johnson allt um málið og hvatti Demókrata til að nota það í komandi forsetakosningunum. Þeir ákváðu að gera það ekki því þeir töldu að þeir myndu vinna forsetakosningarnar. Skilaboðum var hinsvegar komið til Nixon um að Demókratar vissu af þessum "skítabrögðum" hans. Johnson sagði að með þessu hefði Nixon gerst sekur um landráð og að hendur hans væru blóði drifnar. Þar sem Demókratar vildu ekki nota upplýsingarnar hélt Víetnam stríðið áfram og hundruð þúsunda af Víetnömum og yfir 22 þúsund bandarískir hermenn féllu í viðbót áður en Nixon viðurkenndi loks ósigur sinn í Víetnam árið 1973.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira