Tölva sögð hafa búið til umdeildan nauðgunarbol 2. mars 2013 13:01 Bolirnir eru byggðir á áróðursfrasa úr seinna stríði.
Bolaframleiðandinn Solid Gold Bomb hefur beðist afsökunar á stuttermabol frá fyrirtækinu sem var til sölu á vefversluninni Amazon. Umræddur bolur var með áletruninni „Keep calm and rape a lot", sem á íslensku útleggst sem „Haltu ró þinni og nauðgaðu mikið". Notendur vefsins flykktust inn á sölusíðu bolsins og lýstu vanþóknun sinni. Var bolurinn sagður viðurstyggilegur og verslunin hvött til þess að taka hann úr sölu. Talsmaður Amazon UK sagði í viðtali við fréttastofu Sky að bolurinn væri ekki lengur í sölu, en þrátt fyrir það eru enn bolir í sölu frá sama fyrirtæki sem hvetja til kynbundins ofbeldis. Meðal þeirra sem enn eru í sölu er einn sem segir „Haltu ró þinni og sláðu hana", og á öðrum stendur „Haltu ró þinni og stingdu hana". Frasarnir eru byggðir á áróðursfrasanum „Keep calm and carry on", sem notaður var í seinna stríði. Framleiðandi bolanna, fyrirtækið Solid Gold Bomb, segist harma að bolurinn hafi verið settur í sölu. Í yfirlýsingu á vefsíðu fyrirtækisins segir að tölvuforrit sem „búi til samsetningar úr þúsundum orða" hafi búið bolinn til.
Mest lesið Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Fleiri fréttir Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Sjá meira