Erlent

Fór ekki til Wales vegna þarmabólgu

Hin 86 ára drottning er sögð verða fljót á fætur.
Hin 86 ára drottning er sögð verða fljót á fætur. Mynd/Getty
Elísabet II, Englandsdrottning, afboðaði komu sína á hátíðahöld í Wales í dag vegna veikinda. Drottningin hugðist taka þátt í hátíðahöldum í tilefni af degi heilags Davíðs, en heldur sig þess í stað heima að læknisráði.

Er hún sögð þjást af svokölluðum þarmabólgum, en læknar eru vongóðir um að hún nái sér af veikindunum á nokkrum dögum.

Talsmaður konungsfjölskyldunnar vildi ekki tjá sig um hvort af verði að heimsókn Elísabetar til Rómar, en þar á hún að vera í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×