Erlent

Notuðu gíraffakjöt í stað nautakjöts í Suður Afríku

Matvælarannsóknir í Suður Afríku sýna að í einhverjum tilvikum var gíraffakjöt notað í tilbúin matvæli í stað nauta- og antilópukjöts.

Varan sem hér um ræðir heitir biltong og er ákveðin gerð af þurrkuðu kjöti. Í biltong á að nota nautakjöt eða kjöt af kudu antilópum samkvæmt uppskriftinni. Í rannsókninni kom í ljós að gíraffakjöt var að finna í þessari matvöru.

Þessar upplýsingar koma í kjölfar frétta af annarri umfangsmikilli rannsókn í Suður Afríku sem afhjúpaði veruleg vörusvik þegar kom að innihaldslýsingum á tæplega 140 tilbúnum matvælum eins og hamborgurum,pylsum og áleggi, sem áttu að innihalda nautakjöt. Í nær 70% tilvika reyndist kjöt af ösnum, vatnavísundum og geitum vera til staðar í þessum matvælum í stað nautakjöts.

Í frétt um málið hjá AP fréttastofunni er haft eftir prófessor Louwrens C. Hoffman, sem m.a. stjórnaði annarri af fyrrgreindum rannsóknum, að vörusvik sem þessi séu viðvarandi vandamál í landinu. Þetta sé slæmt m.a. af trúarlegum ástæðum þegar trúarbrögð banna neyslu á kjöti af ákveðnum dýrum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×