"Er einhver til í að hjálpa konunni og bjarga lífi hennar?" 4. mars 2013 22:28 „
Við getum ekki veitt fyrstu hjálp á þessu hjúkrunarheimili," sagði hjúkrunarfræðingur á Glenwood Gardens hjúkrunarheimilinu í Bakersfield í Kaliforníu. Hjúkrunarkonan hringdi í neyðarlínuna vestanhafs, 911, á dögunum vegna þess að sjúklingur gat ekki andað. Í símtalinu, sem gert hefur verið opinbert, hvetur starfsmaður neyðarlínunnar hjúkrunarkonuna til þess að veita konunni fyrstu hjálp. Hún talar hins vegar fyrir daufum eyrum. „Er hún að anda?" spyr starfsmaður neyðarlínunnar og fær þau svör að öndun hennar sé lítil sem engin. Starfsmaður neyðarlínunnar biður hjúkrunarkonuna um að rétta einhverjum öðrum símann. Hjúkrunarkonan segir það hins vegar ekki samkvæmt stefnu hjúkrunarheimilisins að starfsmenn né aðrir sjúklingar veiti fyrstu hjálp. „Er einhver til í að hjálpa konunni og bjarga lífi hennar?" segir starfsmaður neyðarlínunnar við dræm viðbrögð á hinum enda línunnar. Hægt er að hlusta á símtalið hér fyrir neðan. Sjúkraflutningamenn mættu á svæðið skömmu síðar og fluttu hina 87 ára gömlu Lorraine Bayles á sjúkrahús. Það reyndist þó of seint og lét hún lífið á sjúkrahúsinu. Óhætt er að segja að mikið hafi verið fjallað um atvikið í fréttum allra tegunda miðla í Bandaríkjunum og víðar í dag. Forsvarsmaður Glenwood Gardens, Jeffrey Toomer, sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hann segist standa með starfsmanni sínum. Þar segir hann brýnt fyrir starfsmönnum heimilisins að hringja í neyðarlínuna um leið og neyðartilfelli komi upp. Óska eigi eftir aðstoð og bíða við hlið viðkomandi þangað til hjálp ber að. Toomer sagði þó að rannsókn yrði gerð og atvikið skoðað innanhúss. Þá sagði hann að öllum íbúum á hjúkrunarheimilinu sé gert ljóst um þessa starfshætti þegar þeir flytja inn á heimilið.Nánar um málið hér.
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira