Erlent

Norsk ferja með 258 farþega strandaði í nótt

Norska ferjan Kong Harald strandaði í Trollfjorden nálægt Lófóten í skömmu eftir miðnættið í nótt. Ferjan situr þar föst á grynningum en reyna á að ná henni á flot á háflóðinu á eftir.

Um borð í ferjunni eru 258 farþegar og 57 manna áhöfn. Í frétt á vefsíðu Verdens Gang segir að ekkert ami að farþegunum sem bíða þess rólegir að ferjan losni.

Talið er að hugsanlega hafi gat komið á botn ferjunnar við strandið en kafarar munu kanna það áður en reynt verður að losa ferjuna af strandstað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×