Erlent

Heilsu Hugo Chavez hefur hrakað verulega

Margir íbúar Venesúela hafa krafist þess að fá nákvæmar upplýsingar um heilsufar Hugo Chavez forseta landsins.

Af þeim sökum hafa yfirvöld gefið út tilkynningu um að forsetinn þjáist af alvarlegri sýkingu í öndunarfærum og að brugðið geti til beggja vona um hvort hann lifi hana af eða ekki. Sýkingin hafi versnað á síðustu dögum.

Chavez hefur ekki sést opinberlega í Venesúela síðan hann kom úr síðustu meðferð sinni við krabbameini á Kúbu í desember s.l.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×