Erlent

Bailey O'Neill var fórnarlamb eineltis

Bailey O'Neill.
Bailey O'Neill.
Tólf ára gamall piltur í Bandaríkjunum, Bailey O'Neill, lést á spítala í Philadelphia á sunnudaginn. Hann var fórnarlamb eineltis. Fyrr á þessu ári varð Bailey fyrir fólskulegri árás bekkjarsystkina sinna. Hann hlaut alvarlegan heilahristing og ákváðu læknar í borginni að halda honum sofandi, allt þangað til að hann lést fyrr í dag.

Árásin átti sér stað 10. janúar. Tveir bekkjarbræður Baileys réðust á hann og lömdu ítrekað í höfuðið. Faðir hans segir að pilturinn hafi ekki verið samur eftir árásina.

Nokkrum dögum seinna var Bailey komið undir læknishendur í Philadelphia. Hann hafði þá fengið nokkur alvarleg flog á heimili sínu.

Læknar komust fljótt að því að heili piltsins hafði orðið fyrir varanlegum skemmdum. Stuttu seinna þurfti pilturinn að berjast við lungnabólgu og þurfti á blóðgjöf að halda. Læknar héldu honum sofandi en hann átti ekki eftir að vakna aftur.

„Hann var fullkomlega heilbrigður piltur þar til allt þetta dundi yfir hann," sagði Rob O'Neill, faðir Bailey. „Hann var hress og skemmtilegur. Það amaði ekkert að honum."

Rob segir að sonur sinn hafi um árabil þurft að takast á við einelti. Þessi skilaboð birtust á stuðningssíðu Bailey í dag:

„Ég vill þakka öllum þeim sem báðu fyrir Bailey og studdu. Hann var sterkasti drengur sem ég hef kynnst og hann barðist vel og lengi. Hann er nú með guði. Ég elska þig Bailey!"




Fleiri fréttir

Sjá meira


×