Erlent

Russell Crowe sá fljúgandi furðuhlut

Stórleikarinn og Íslandsvinurinn Russell Crowe fullyrðir að hann hafi séð fljúgandi furðuhlut hátt yfir borginni Sidney í Ástralíu á dögunum.



Leikarinn náði myndbandi af fyrirbærinu þegar hann freistaði þess að mynda ávaxtaleðurblökur í Woolloomooloo hverfinu í Sidney.



Crowe birti síðan ljósmyndir af atvikinu á Twitter og birti seinna meir myndbandið í heild sinni á YouTube.



Svo virðist sem að efasemdir séu meðal netverja um hvort að myndbandið sé raunverulegt.



Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir ofan en nánar má lesa um málið á vefsíðu Sky.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×