Erlent

Dóttir Michael Jackson orðin klappstýra

Paris er lengst til vinstri í fremstu röð.
Paris er lengst til vinstri í fremstu röð. Mynd/Heimasíða Buckley skólans
Paris Jackson, dóttir tónlistargoðsagnarinnar Michael Jackson, stendur sig vel í klappstýruhlutverkinu hjá Sherman Oaks Buckley gagnfræðaskólanum í Kaliforníu.

Hin fjórtán ára Paris, sem yfir ein milljón manna fylgir á samfélagsmiðlinum Twitter, er í klappstýruliðinu sem leikur listir sínar á leikjum karlaliðs skólans í körfubolta.

Körfuboltaliðið gerði góða hluti á dögunum þegar það vann sinn fyrsta titil í ríkinu með átta stiga sigri á grannskóla sínum San Luis Obispo 54-46.





Paris JacksonMynd/Twitter
Paris er á sínu þriðja ári við skólann. Helsta ástæða þess að hún stundar nám við skólann er sú að um einkaskóla er að ræða og ætlaður fáum útvöldum. Þannig tekst Paris að einhverju leyti að halda sig frá kastljósi fjölmiðlanna.

Þrátt fyrir það er Paris afar virk á Twitter og deilir þar sínum lífsskoðunum og framtíðarsýn en hún stefnir á að leggja kvikmyndaleik fyrir sig. Nánar hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×