Erlent

Friðargæsluliðar teknir sem gíslar við Gólan hæðir

Uppreisnarmenn í Sýrlandi hafa tekið 21 friðargæsluliða sem gísla í grennd við Gólan hæðir á landamærum Sýrlands og Ísrael.

Um er að ræða friðargæsluliða frá Filippseyjum og hafa stjórnvöld á Filippseyjum krafist þess að þeir verði samstundis leystir úr haldi.

Uppreisnarmennirnir segja að þeir muni aðeins gera það ef stjórnarher Sýrlands yfirgefi þorp á Gólan hæðum.

Í frétt um málið á vefsíðu BBC er haft eftir talsmanni utanríkisráðuneytis Filippseyja að verið sé að semja um lausn friðargæsluliðanna. Friðargæsluliðar frá Filippseyjum hafa vaktað þetta svæði allt frá sex daga stríðinu árið 1967.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×