Rjóminn af háaðli Bretlands staddur í brúðkaupi í Suður Afríku 7. mars 2013 06:44
Rjóminn af háaðli Bretlands er nú samankominn á safarisetri auðmannsins Sir Richard Branson í Suður Afríku. Ástæðan er það sem breskir fjölmiðlar kalla næstum því konunglegt brúðkaup ársins. Brúðkaup þetta fór fram í gærdag með mikilli viðhöfn að viðstöddum 300 gestum, allt nánum vinum og ættmennum hinna nýgiftu hjóna. Þau eru Sam Branson sonur Sir Richards og yfirstéttarljóskan Isabella Calthorpe. Meðal gesta má nefna tvær prinsessur, þær Eugenie og Beatrice, dætur Andrews prins, leikkonuna Kate Winslet og Cressidu Bonas sem er hin nýja kærasta Harry prins. Cressida er hálfsystir brúðarinnar en Isabella hryggbraut Willian prins bróður Harry fyrir nokkrum árum. Það gerðist eftir að Karl krónprins hafði lýst yfir ánægju sinni með ráðahaginn. Blóðið sem rennur í æðum Isabellu verður vart blárra í Bretlandi. Móðir hennar er Lady Marie Gaye Curzon dóttir sjötta jarlsins af Howe. Hún á fjóra eiginmenn að baki og eignaðist dóttur með hverjum þeirra. Raunar hafa ættfræðingar áhyggjur af sambandi Cressidu og Harry því Lady Marie Gaye og Diana prinsessa móðir Harry voru náskyldar. Sam Branson rekur kvikmyndafyrirtæki sem sérhæfir sig í gerð heimildarmynda.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Fleiri fréttir Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Sjá meira