Erlent

Lést eftir árás ljóns

Hin 24 ára gamla Dianna Hanson lést í Cat Haven-dýragarðinum í Kaliforníu eftir að 160 kílóa afrískt ljón réðist á hana í gær.

Hanson, sem var í starfsþjálfun hjá dýragarðinum, var inni í búri ljónsins þegar slysið varð en ekki er enn vitað hvaða erindi hún átti inn í búrið.

Ljónið, sem bar nafnið Couscous og var fjögurra ára gamalt, var skotið af lögreglumanni þegar ljóst var að ekki var hægt að lokka ljónið í burtu frá Hanson.

Öryggi Cat Haven-dýragarðsins hefur áður verið skoðað og þótt til fyrirmyndar.

Dianna Hanson var í sex mánaða starfsþjálfun í dýragarðinum.Mynd/Facebook



Fleiri fréttir

Sjá meira


×