„Ég er sprengja - Jihad, fæddur 11. september“ 7. mars 2013 16:11
Boucha Bagour, þrjátíu og fimm ára gömul frönsk móðir, hefur verið ákærð eftir að hún sendi þriggja ára son sinn í leikskóla í haust í stuttermabol með áletruninni: „Ég er sprengja." Saksóknari ákvað að ákæra hana, og bróður hennar, eftir að leikskólastjórinn og kennararnir tilkynntu yfirvöldum um athæfið. Framan á bolnum stóð: „Ég er sprengja" og aftan á honum stóð: „Jihad, fæddur 11. september." Þó að þetta líti ekkert sérstaklega vel út þá hefur mamman sínar skýringar. Í fyrsta lagi er sonur hennar skírður Jihad og hann fæddist 11. september árið 2010. Og í öðru lagi þá getur setningin framan á bolnum, „Je suis la bombe" einnig þýtt „Ég er bestur". Það er slangur sem ungt fólk notar. Hjá fullorðnum þýðir þetta einfaldlega: „Ég er sprengja"Mamman sagði fyrir dómara að hún hafi gefið syni sínum bolinn í afmælisgjöf. „Markmið mitt var ekki að ögra eða hneyksla," sagði hún um leið og hún baðst afsökunar. „Þetta er nafnið á syni mínum og fæðingardagur hans. Ég hélt að fólki myndi finnast þetta fyndið." Ef móðirin verður fundin sek á hún yfir höfði sér sekt upp á 160 þúsund krónur, og bróðir konunnar gæti fengið 500 þúsund króna sekt. Dómarinn kveður upp dóm sinn 10. apríl næstkomandi.
Mest lesið Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Erlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Sjá meira