Orðagjálfur Norður-Kóreumanna nær nýjum hæðum Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 8. mars 2013 11:09 MYND/GETTY
Norður-Kóreumenn eru ævareiðir eftir að Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna samþykkti einróma hertari refsiaðgerðir gegn landinu. Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa slitið öllum friðarsamningum við frændur sína í suðri og hóta kjarnorkuárás á höfuðborg Bandaríkjanna. Yfirlýsingar sem þessar ættu ekki að koma þeim sem fylgst hafa með gangi mála í Norður-Kóreu á óvart. Frá því að Kim Jong-un, sonur og erfingi Kim Jong-il komst til valda á síðasta ári hefur Norður-Kóreu staðið í miklu áróðursstríði við erkifjendur sína í Bandaríkjunum og Suður-Kóreu. Ráðamenn í Norður-Kóreu hafa eflt hernaðarmátt landsins til muna samhliða því að taka mikilvæg skref í átt að þróun kjarnavopna. Það eru einmitt þessar tilraunir Norður-Kóreumanna með kjarnavopn sem voru tilefni hertari refsiaðgerða Sameinuðu Þjóðanna.MYND/APStuttu áður en atkvæðagreiðsla fór fram um málið í Öryggisráðinu gaf utanríkisráðuneyti Norður-Kóreu út yfirlýsingu þar sem hótað var að varpa kjarnavopni á Washington, höfuðborg Bandaríkjanna. Ályktun Bandaríkjamanna og Kína um auknar þvinganir gegn Norður-Kóreu var síðar samþykkt. Þá gripu yfirvöld í Norður-Kóreu til þess ráðs að slíta öllum friðarsamningum við Suður-Kóreu, þar á meðal er samþykkt frá árinu 1953 sem markaði endalok Kóreustríðsins. Orðagjálfur Norður-Kóreumanna hefur náð nýjum hæðum undanfarna mánuði. Þeir líta á refsiaðgerðirnar sem óbeina stríðsyfirlýsingu, þannig væri kjarnorkuárás á óvinaríki fyrirbyggjandi aðgerð. Ekki hafa fengist viðbrögð frá Bandaríkjastjórn um málið. John Kerry, nýskipaður utanríkisráðherra Bandaríkjanna, var spurður á dögunum hvort að körfuknattleiksmaðurinn fyrrverandi Dennis Rodman, sem fundaði með leiðtoga Norður-Kóreu í vikunni, hefði eitthvað um málið að segja. Kerry svaraði á þann veg, að sem diplómati væri Rodman fyrirtaks körfuknattleiksmaður.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira