Erlent

Passað upp á skjaldbökurnar

Á ráðstefnu CITES í Bangkok í Tælandi í dag var ákveðið að auka eftirlit með skjaldbökum í útrýmingarhættu.

Tegundirnar eru afar vinsælar sem gæludýr en einnig í matargerð. Dýravinir taka tíðindum fagnandi og segja um mikilvægt skref að ræða. Meira en helmingur af skjaldbökum sem lifa í ferskvatni í heiminum eru í útrýmingarhættu.

Það vakti athygli að sumar reglurnar, sem lagðar voru til á fundinum, komu úr sameiginlegri smiðju Bandaríkjanna og Kínverja. Aldrei áður hafa þjóðirnar verið samstíga í baráttunni gegn útrýmingu skriðdýra.

CITES eru samtök sem fjalla um viðskipti með dýr í útrýmingarhættu. Nánar á fréttavef BBC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×