Erlent

Tæplega 20 slasaðir eftir stórbruna í verslunarmiðstöð

Tæplega 20 manns eru slasaðir, þar af tveir lífshættulega, eftir að gassprenging í verslunarmiðstöð í Kansas borg í Missouri olli stórbruna í miðstöðinni í gærkvöldi.

Ekki er vitað um mannfall í þessum stórbruna en ljóst er að eignatjónið er verulegt. Lögreglan leitar enn að fólki í brunarústunum og eru leitarhundar m.a. notaðir til þess.

Talið er að gasspreningin hafi orðið vegna mistaka hjá verktökum sem voru að vinna við viðhald á leiðslum miðstöðvarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×