Sambandsrof við Alþjóðlegu geimstöðina Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 20. febrúar 2013 09:44 Geimfari vinnur að viðgerð á Alþjóðlegu geimstöðinni. Mynd/Getty
Tölvubilun olli því að samband við Alþjóðlegu geimstöðina (ISS) rofnaði í gær í tæpar þrjár klukkustundir. Tæknimenn í Houston voru að uppfæra hugbúnað geimstöðvarinnar þegar bilunin varð, og rofnaði samband við geimstöðina í kjölfarið. Sex geimfarar starfa í stöðinni, tveir Bandaríkjamenn, þrír Rússar og einn Kanadamaður. Bilun af þessu tagi er sögð hafa átt sér stað nokkrum sinnum áður, og þykir ekki sérlega alvarleg, en fyrrverandi geimfarinn Jerry Linenger sagði í samtali við BBC að atvik sem þetta væri „ekki hræðilegt" svo lengi sem engar aðrar bilanir ættu sér stað samtímis. Linenger var um borð í rússnesku geimstöðinni Mír árið 1997 þegar eldur kom upp í stöðinni. Undanfarnar vikur hefur áhöfn ISS gert æfingar þar sem líkt er eftir sambandsrofi við Houston, en með því er verið að kanna hvernig áhöfn getur brugðist við slíkum bilunum í Mars-leiðöngrum framtíðar. Talsmaður NASA, Josh Byerly, segir að bilunin í gær hafi ekki verið hluti af þessum prófunum, en reynslan muni hugsanlega koma að góðum notum.
Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Sjá meira