140 þúsund krónur fyrir "Facerape" 20. febrúar 2013 14:43
Tveir danskir táningsdrengir voru í dag dæmdir til þess að greiða jafnöldru sinni sex þúsund danskar krónur í sekt fyrir að breyta prófílmynd hennar á Facebook. Drengirnir settu mynd af getnaðarlim á prófílmynd stúlkunnar sem hafði ekki mikinn húmor fyrir hrekk drengjanna. Skundaði hún á lögreglustöðina í Helsingjaeyri ásamt foreldrum sínum og kærði verknaðinn. Lögreglumenn höfðu uppi á IP-tölu tölvu þess sem breytinguna gerði og kom upp úr krafsinu að drengirnir tveir voru sökudólgarnir. Þarf annar drengjanna að greiða sekt upp á 4.000 danskar krónur en hinn 2.000 danskar krónur. Upphæðin svarar til 46 þúsund og 92 þúsund íslenskra króna. Orðið Facerape er notað yfir það þegar einhver kemst inn á Facebook-aðgang notanda og hrekkir hann. Oftar en ekki er ástæðan sú að notandi gleymir að skrá sig útaf síðunni. Yfirleitt verður úr saklaus brandari en lektor í lögfræði við Kaupmannahafnarháskóla segir að málið ætti að verða öðrum víti til varnaðar. „Þetta er áminning um að leikreglur sem viðhafðar eru utan samfélagsmiðla gilda einnig innan þeirra," segir lektorinn Trine Baumbach. Hún telur að dómurinn geti vel orðið til þess að kærumálum muni fjölga. „Ég get vel ímyndað mér það. Þetta mál sýnir foreldrum og börnum að áreitni og tölvuhrekkir sé ekki eitthvað sem þurfi að sætta sig við," segir Baumbach. Þá ráðleggur hún ungu fólki að hugsa sig tvisvar um áður en það tjáir sig á samskiptamiðlum, hvort sem er á eigin síðu eða síðum annarra.Nánar um málið á danska vefmiðlinum Berlingske.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Fleiri fréttir Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Sjá meira