Erlent

Danir segja sig úr þjóðkirkjunni sem aldrei fyrr

Yfir 21.000 manns í Danmörku sögðu sig úr þjóðkirkju landsins á síðasta ári. Þessi fjöldi hefur aldrei verið meiri og úrsagnirnar jukust um yfir 7.500 miðað við árið á undan.

Þetta kemur fram í nýjum tölum frá hagstofu landsins. Þar segir að það séu einkum einstaklingar á aldrinum 18 til 54 ára sem velja að segja sig úr þjóðkirkjunni. Sá hópur taldi rétt tæplega 16.000 manns í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×