Erlent

Örn stöðvaði lestarferðir yfir Litlabeltisbrúna í fimm tíma

Allar lestarferðir yfir Liltabeltisbrúna milli Jótlands og Fjóns lágu niðri í fimm tíma eftir hádegið í gærdag. Ástæðan fyrir þessu var að örn flaug á rafmagnslínu við brúna með þeim afleiðingum að rafmagnið sló út á brautarteinunum.

Þetta átti sér stað um tvö leytið um daginn en það var ekki fyrr en um kvöldmatarleytið að byrjað var að hleypa farþegalestum yfir brúna að nýju. Á meðan voru rútur notaðar til að flytja lestarfarþega á milli bæjanna Fredericia og Middlefart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×