Erlent

Neyðarfundur í Frakklandi vegna hrossakjötshneykslisins

Hrossakjötshneykslið í Bretlandi hefur smitað út frá sér til meginlands Evrópu. Í frétt á vefsíðu BBC um málið segir að ráðherrar landbúnaðarmála og neytendamála í Frakklandi muni halda neyðarfund um málið í dag.

Sex franskar stórverslanankeðjur hafa þegar tekið allar allar vörur frá framleiðendunum Findus og Comigel, þar sem nautahakk er sagt til staðar, úr hillum sínum. Þetta var gert í framhaldi af því að hrossakjöt fannst í töluverðu magni í samkonar vörum í Bretlandi.

Fyrrgreindir ráðherrar vilja tryggja að allar vörur sem hugsanlega innihaldi hrossakjöt í stað nautakljöts verði fjarlægðar úr verslunum í Frakklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×