Erlent

Aftur barist á götum Gao í norðurhluta Malí

Fréttir berast nú um að miklir götubardagar geisi í bænum Gao í norðurhluta Malí á milli stjórnarhersins í Malí og herskárra íslamista.

Bardagar þessir hófust í framhaldi af sjálfsmorðssprengjuárás við eina af eftirlitsstöðvum hersins í gærdag.

Franskir hermenn og stjórnarhermenn náðu Gao á sitt vald fyrir tveimur vikum síðan. Svo virðist sem íslamistunum hafi tekist að lauma sér inn í bæinn að nýju þrátt fyrir miklar öryggisráðstafanir til að koma í veg fyrir slíkt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×