Mafían talin tengjast hrossakjötshneykslinu 11. febrúar 2013 10:23
Hrossakjötshneykslið sem hófst nýlega í Bretlandi verður stöðugt umfangsmeira. Nú er mafían í tveimur löndum sögð tengjast því og grunsemdir eru uppi um að kjöt af ösnum hafi einnig verið notað í tilbúna rétti í stað nautakjöts. Hrossakjötshneykslið í Bretlandi hefur smitað út frá sér til meginlands Evrópu. Það nær til Írlands, Póllands, Rúmeníu, Kýpur, Lúxemborgar og nú síðast Frakklands. Í frétt á vefsíðu BBC um málið segir að ráðherrar landbúnaðarmála og neytendamála í Frakklandi muni halda neyðarfund um málið í dag. Sex franskar stórverslanakeðjur hafa þegar tekið allar allar vörur frá framleiðendunum Findus og Comigel, þar sem nautahakk er sagt til staðar, úr hillum sínum. Þetta var gert í framhaldi af því að hrossakjöt fannst í töluverðu magni í samskonar vörum í Bretlandi. Fyrrgreindir ráðherrar vilja tryggja að allar vörur sem hugsanlega innihaldi hrossakjört í stað nautakjöts verði fjarlægðar úr verslunum í Frakklandi. Í blaðinu Daily Mail kemur fram að stór hluti af hrossakjötinu sé uppruninn í Rúmeníu og raunar eru fréttir um að kjöt úr ösnum hafi einnig blandast því áður en það var sent vestur á bóginn til notkunar sem nautakjöt í tilbúnum réttum hjá Findus og Comigel. Þá segir að bæði ítalska mafían og sú rúmenska séu grunaðar um flutninginn á þessu kjöti milli landa og að mafíubófar hafi mútað eða hótað því fólki sem átti að hafa eftirlit með kjötinu. Mafían á að hafa notað Kýpur og Lúxemborg sem áfangastaði fyrir kjötið áður en það var selt. Búið er að upplýsa evrópsku lögregluna Europol um mafíutengslin og von er á rannsókn Europol á þeim tengslum. Breska lögreglan hefur þegar hafið rannsókn á málinu og segir að hún sé í samstarfi við lögregluyfirvöld í öðrum löndum.
Mest lesið Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Fleiri fréttir Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Sjá meira