Erlent

Fimmtíu ár frá hljóðritun fyrstu Bítlaplötunnar

Umslag plötunnar, sem kom út í mars 1963.
Umslag plötunnar, sem kom út í mars 1963.
Í dag eru nákvæmlega fimmtíu ár liðin frá hljóðritun fyrstu plötu Bítlanna, Please Please Me.

Þann 11. febrúar 1963 fór þessi goðsagnakenndi kvartett í hljóðver EMI við Abbey Road í Lundúnum, og hljóðritaði plötuna nánast alla í einum rykk. Platan kom út rúmum mánuði síðar.

Meðal laga á plötunni voru fyrsta smáskífan, Love Me Do, McCartney-lagið I Saw Her Standing There, og hið háværa Twist and Shout.

Upptökurnar kostuðu um 400 pund, en hverjum Bítli voru greidd laun, rúmlega tuttugu pund fyrir daginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×