Erlent

Mesta forskot Verkamannaflokksins í tæpan áratug

Ed Milliband formaður Verkamannaflokksins.
Ed Milliband formaður Verkamannaflokksins.
Verkamannaflokkurinn í Bretlandi mælist nú með 12 prósentustiga forskot á Íhaldsflokkinn samkvæmt nýrri könnun sem blaðið The Guardian hefur birt. Þetta er mesta forskot Verkamannaflokksins á Íhaldsmenn í tæpan áratug.

Verkamannaflokkurinn mælist með 41% í könnuninni. Íhaldsflokkurinn fær 29%, en Frjálslyndir demókratar, samstarfsmenn íhaldsmanna í ríkisstjórn, fá 13%.

Sjálfstæðisflokkur Bretlands fær 9% en sá flokkur virðist einkum taka fylgi frá Íhaldsflokknum sem Guaridan segir að hljóti að valda David Cameron forsætisráðherra Bretlands miklum vonbrigðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×