Erlent

Verulega dregur úr aðsókn Dana á leikhússýningar

Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn.
Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn.
Verulega hefur dregið úr aðsókn Dana á leikhússýningar þar í landi á undanförnum árum.

Þetta kemur fram í nýrri úttekt á seldum miðum í leikhús landsins á síðustu 30 árum en niðurstöður hennar eru birtar á menningarvefnum söndagaften.dk.

Í ljós kemur að veturinn 1981 til 1982 voru seldar um þrjár miljónir aðgöngumiða á leiksýningar í Danmörku. Síðasta vetur nam salan hinsvegar undir tveimur milljónum miða og hafði því dregist saman um 33% á tímabilinu.

Stig Jarl lektor í leikhúsfræðum við háskólann í Kaupmannahöfn segir að leikhús hafi misst sérstöðu sína í Danmörku og ekki sé talið jafnvirðulegt og áður að sækja leiksýningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×