Erlent

Öryggisráðið kallað saman vegna kjarnorkusprengingar í Norður Kóreu

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur verið kallað saman til skyndifundar í dag vegna þess að Norður Kóreumenn sprengdu kjarnorkusprengju í gærdag, þá þriðju á síðustu sjö árum.

Stjórnvöld í Norður Kóreu hafa staðfest sprenginguna en sérfræðingar í Suður Kóreru segja að krafturinn í henni hafi verið 6 til 7 kílótonn.

Í frétt um málið á AFP fréttastofunni segir að Kínverjar hafi verið aðvaraðir fyrirfram um þessa sprengingu og að þeir hafi hvatt Norður Kóreumenn til að hætta við hana en án árangurs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×