Erlent

Kallar 34 þúsund hermenn heim

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Obama veitir Clinton Romesha heiðursorðu fyrir herþjónustu í Afganistan.
Obama veitir Clinton Romesha heiðursorðu fyrir herþjónustu í Afganistan. Nordicphotos/AFP
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, mun tilkynna um heimkomu 34 þúsund bandarískra hermanna frá Afganistan á morgun. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir áreiðanlegum heimildum.

Obama heldur sína árlegu ræðu fyrir sameiginlegu þingi á morgun. Þar ætlar hann að tilkynna að 34 þúsund Bandaríkjamenn, sem sinna herskyldu í Afganistan, muni snúa til síns heima innan árs.

Obama og Hamid Karzi, forseti Afganistan, ákváðu á fundi í janúar að hraða því að heimamenn tækju sjálfir yfir umsjón með hermálum í landinu. Um 66 þúsund bandarískir hermenn eru í Afganistan og því mun þeim fækka um rúmlega helming á næsta ári.

Stöðug fækkun hefur orðið í herliði annarra NATO-þjóða undanfarið þrátt fyrir óvissu varðandi getu Afgana til þess að bera ábyrgð á eigin öryggi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×