Erlent

Dorner framdi sjálfsmorð eftir skotbardaga við lögregluna

Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að lík Christopher Dorner hafi fundist í brunarústum veiðikofa í Kaliforníu í nótt.

Dorner var sakaður um þrjú morð og mikill fjöldi lögreglumanna frá Los Angeles hafði leitað hans í nokkra daga.

Áður en veiðikofinn brann hafði komið til skotbardaga við hann milli Dorner og lögreglumanna sem umkringdu kofann. Einn lögreglumaður féll í þeim bardaga og annar liggur særður á sjúkrahúsi.

Skömmu áður en kofinn varð alelda heyrðist skot inn í honum og talið er að Dorner hafi framið sjálfsmorð um leið og hann kveikti í kofanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×